Davíð Snorri Jónsson landsliðsþjálfari U-16 í knattspyrnu valdi í dag Eyþór Orra Ómarsson til úrtaksæfinga sem fara fram í Reykjavík dagana 1.-3. febrúar. Eyþór Orri vakti mikla athygli síðasta sumar er hann varð yngsti leikmaður frá upphafi til að leika í úrvalsdeild.
ÍBV óskar Eyþóri Orra innilega til hamingju með þennan árangur